Uppskriftir

Glútenfríar Rice Krispies Sykurpúðakökur

Mig langar að koma með tillögu í jólasmákökuflóruna. Og það eru Rice Krispies sykurpúðakökur. Nema að ég er ekki að nota Rice Krispies þar sem það merki er ekki glúten frítt. En örvæntið ekki. Það er lokins komið glúten frítt Rice Krispies til Íslands! Það fæst í Krónunni og heitir: Nestlé go free rice pops…

Lesa uppskriftina

Kókos og súkkulaðibita smákökur

Ég er ennþá að baka jólasmákökur og í þetta skipti eru það kókos og súkkulaðibita smákökur. Upprunalega eru þetta víst kallaðar Bryndísarkökur, og kemur uppskriftin frá tengdafjölskyldunni (nema þá ekki ofnæmisvæn). Þannig takk Bryndís, hver sem þú ert, þetta eru góðar kökur. Í staðin fyrir eggin notaði ég einfaldlega jurtamjólk til að bleyta í deginu,…

Lesa uppskriftina

Glútenfríar hafrasmákökur með rúsínum

Undanfarin ár höfum ekkert verið að hugsa út í jólasmákökur, í fyrra bökuðum við piparkökur og það var bara frábært. Núna er ég aðeins að spá í fleiri sortum og í þetta skiptið ákvað ég að baka glútenfríar hafrasmákökur með rúsínum. Þær voru gómsætar! Nákvæmlega eins og ég var að vonast eftir, það er eitthvað…

Lesa uppskriftina

Something went wrong. Please refresh the page and/or try again.


About Me

Hæ, Ég heiti Katrin.

og ég elska að baka og bara allan mat! En þegar dóttir mín fæddist 2021 fékk ég þær fréttir að hún væri með fjölofnæmi. Þar sem mitt markmið var að hafa hana á brjósti í að minnstakosti tvö ár þurfti ég að taka allt úr mínum mat það sem hún var með ofnæmi fyrir. Ég man eftir símtalinu frá barnalækninum okkar þar sem hún sagði “….. það er nú ekki mikill matur eftir” og ég hugsaði með mér að ég myndi nú sýna henni og öllum heiminum að það væri fullt af mat sem ég gæti borðað og sem að dóttir mín gæti svo borðað.